Cube Design - Quadro fataskápar

CUBVWARDROBE

Quadro fataskápar frá Cube Design.

Sterkir og góðir fataskápar úr Quadro skápalínunni. Í fataskápnum er skóhilla, hattahilla og fataslá.
Tegund fataslár er mismunandi eftir dýpt fataskápsins – dýpt 430 mm er með útdraganlegri fataslá, dýpt 600 mm er með hefðbundinni fastri fataslá milli enda.

Í boði eru tvær gerðir af skápum, einfaldir eða tvöfaldir.
Einfaldur skápur:
Breidd: 410 eða 600
Dýpt: 600 mm
Hæð: 1936 mm án sökkuls
Tvöfaldur skápur:
Breidd: 804 mm
Dýpt: 430 mm eða 600 mm
Hæð: 1936 mm án sökkuls
Mælum með að velja einnig sökkul fyrir fataskáp.
Athugið að það er ekki skilrúm í tvöfalda skápnum.

Quadro fataskápar eru gerðir úr 16 mm plötum. Veldu á milli 7 lita skápa í laminate eða 5 lita í spón en fjölmargir litir og efnisval í boði fyrir framhliðar á skápa.
Það er alltaf 2 mm höggþolinn ABS-kantur (laminate skápur) og 2 mm viðarkantur (spónarskápur).

Stöðluð handföng fyrir Quadro skápa eru úr áli, en þú getur líka valið á milli hvítra, svartra eða króm handfanga. Að auki er hægt að velja önnur handföng úr standard úrvali.

Framleiðandi: Cube Design Danmörku
Ábyrgð: 10 ár gegn framleiðslugöllum

Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl