



Nýtt
Lýsing
SmartFit™ Easy Riser™ er fartölvustandur frá Kensington sem gerir þér kleift að velja ákjósanlega hæðarstillingu með því að nota SmartFit™-töfluna. Standurinn er í SmartFit™-línunni frá Kensington sem hönnuð er út frá vinnuvistfræðilegu sjónarmiði og byggist á litakóðuðu leiðbeiningakerfi sem tryggir rétta stillingu fyrir viðkomandi notanda og styður rétt, vinnuvistfræðilegt sjónarhorn í augnhæð, sem og betri stöðu á hálsi og öxlum. Með því að lyfta fartölvunni er um leið verið að draga úr álagi á rafhlöðuna þar sem loftflæðið verður betra og rafhlaðan endist lengur. Með bólstrun svo fartölvan helst örugg á sínum stað meðan unnið er. Hægt er að leggja standinn alveg saman svo það er einfalt og þægilegt að taka hann með á milli staða og í ferðalagið.
- Litur: Grár
- Fyrir fartölvur 12-17"
- Upp að 50° halli
- Hægt að leggja alveg saman
- 2ja ára framleiðsluábyrgð
- Framleiðandi: Kensington
Eiginleikar