Bylgja Bára Bragadóttir, sölustjóri hjá A4, ásamt Krístínu Waage framkvæmdastjóra Blindrafélagsins.
A4 gaf Blindrafélaginu um þúsund Lego Braille Bricks poka
Í tilefni af Degi hvíta stafsins, 15. október, gaf A4 Blindrafélaginu um þúsund poka af LEGO Braille Bricks. Dagur hvíta stafsins er alþjóðlegur baráttu- og vitundardagur blindra og sjónskertra og því var sérstaklega viðeigandi að afhenda gjöfina á þessum góða degi.
LEGO Braille Bricks eru sérstakir LEGO-kubbar sem ætlaðir eru til að hjálpa börnum að kynnast og læra blindraletur í gegnum leik. Á kubbunum eru upphleyptir punktar sem mynda bókstafi í blindraletri og þannig sameinast leikur, sköpun og lærdómur.
Kubbarnir geta nýst bæði blindum og sjónskertum börnum sem og sjáandi börnum og skapa þannig skemmtilegt tækifæri fyrir börn til að læra, byggja og leika saman.
Við erum afar ánægð með gjöfina og vitum að hún mun koma að góðum notum.