Helga Guðrún Ólafsdóttir, fjármálastjóri A4, tók á móti viðurkenningunni.

A4 er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Við hjá A4 erum afar stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026, en aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla skilyrðin fyrir viðurkenningunni.

Viðurkenningin er okkur mikils virði og er staðfesting á þeirri vinnu sem starfsfólk A4 leggur sig fram við á hverjum degi.

Við viljum því nota tækifærið og þakka okkar frábæra starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir að vera hluti af vegferðinni með okkur.

Við höldum áfram að gera okkar besta og hlökkum til þess sem fram undan er.