Jólagjafahandbók A4 er komin út 🎁

Jólin nálgast óðfluga og nú er Jólagjafahandbók A4 2026 komin út, stútfull af hugmyndum fyrir pakkann.

Handbókin er komin út rafrænt á vef A4 og fimmtudaginn 5. nóvember verður henni einnig dreift inn á 80.000 heimili um allt land.

Í handbókinni má finna fjölbreytt úrval af jólagjafahugmyndum fyrir fjölskyldu og vini, hvort sem leitað er að einhverju skemmtilegu, skapandi, fallegu eða nytsamlegu. Þar ættu því flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem verið er að leita að litlum glaðningi eða pakkanum undir tréð.

Markmiðið er að gera jólagjafaleitina aðeins einfaldari og hjálpa fólki að finna hugmyndir að gjöfum sem gleðja.

Skoðaðu Jólagjafahandbók A4 og komdu jólagjafaleitinni af stað 🎄✨