Lára missir tönn

FOR227984

Lára hlakkar alltaf til að fara á fimleikaæfingu og finnst svo gaman að hoppa á trampólíninu og gera ýmsar æfingar en í dag á Lára erfitt með að einbeita sér því hún er með lausa tönn. Ætli það sé sárt þegar tönnin dettur loksins úr? Og hvað á eiginlega að gera við barnatennurnar? Hin lífglaða Lára hefur sérlega gaman af því að læra eitthvað nýtt. Banginn Ljónsi fylgir henni hvert fótmál og saman spreyta þau sig á ýmsum verkefnum.


  • Höfundur: Birgitta Haukdal
  • Innbundin
  • 39 bls.
  • Útgáfuár: 2023
  • Útgefandi: Vaka-Helgafell